Samfélagsmiðlar

Hlutfall flugkvenna hærra hjá Icelandair

Það eru sárafá dæmi um konur sem stýra flugfélögum en hlutfall kvenna sem fljúga farþegaþotum verður sífellt hærra.

icelandair 767 757

Þegar forstjórar helstu flugfélaga heims hittust á ársfundi IATA, alþjóðasamtaka flugfélaga, nú í ágúst kusu þeir samtökunum nýja stjórn. Í henni eiga 29 karlar sæti en bara ein kona. Skýringin á þessum ótrúlega kynjahalla er einfaldlega sú að konurnar í forstjórastólum flugfélaganna eru örfáar. Og þeim fer fækkandi eftir nýleg forstjóraskipti í bresku flugfélögunum Flybe og þar á undan easyJet.

Þróunin er önnur þegar kemur að því að stýra farþegaþotum því konum í stétt flugmanna og flugstjóra fer fjölgandi. Það er þó aðeins komið upp í rúmlega fimm af hundraði á heimsvísu. Hjá Icelandair er hlutfallið miklu hærra eða þrettán prósent og ekkert annað vestrænt flugfélag státar af álíka. Þannig er vægi kvenkyns atvinnuflugmanna á launaskrá hjá Lufthansa og United Airlines rétt um átta prósent en þau félög standa næstbest á þessu sviði samkvæmt úttekt sem Forbes tímaritið birti í fyrra.

Að sögn Lindu Gunnarsdóttur, yfirflugstjóra Icelandair, þá er staða flugkvenna í heiminum mjög mismunandi eftir löndum. „Hæsta hlutfall kvenna í flugi er á Indlandi en það þarf ekki að leita lengra en til Bretlands til að finna dæmi þess að kvenflugmönnum sé sagt upp störfum ef þær verða óléttar. Það er því mikið verk óunnið til að gera starfið aðlandi fyrir konur víðast hvar,“ segir Linda.

Aðspurð um ástæður þessa háa hlutfalls hjá Icelandair þá segir Linda að fyrir tæpum áratug hafi konum í flugnámi allt í einu farið að fjölga verulega. „Sennilega vegna þess að þá var komin kynslóð sem leit á atvinnuflug sem raunverulegan valkost fyrir konur vegna þess að þær höfðu fyrirmyndir af öðrum konum í flugi. Konum í umsóknarferli fjölgaði því verulega en bæði kynin fara að sjálfsögðu í gegnum sama umsóknarferli hjá Icelandair. Það hjálpar líka til hvað staða kvenna er sterk hér á landi varðandi barneignarleyfi og vistun barna þar sem vinnutíminn er ekki alltaf fjölskylduvænn. Þetta gerir konum kleift að samræma vinnu og einkalíf.“

Á síðasta ári var Linda beðin um að halda fyrirlestur á ráðstefnu sem haldin var af Alþjóða flugmálastofnuninni og Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna í S-Afríku. Þar fór hún yfir stöðuna hjá Icelandair og ástæður þess að félagið hefur náð eins langt í þessum efnum og raun ber vitni. „Við reynum því að leggja okkar af mörkum til að styrkja stöðu kvenna annars staðar í heiminum því við vitum að blandaðir vinnustaðir eru afar ákjósanlegir fyrir margra hluta sakir eins og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á,“ segir Linda að lokum.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …