Samfélagsmiðlar

Ætla að bjóða upp á daglegar ferðir til Kaupmannahafnar og Prag

Íslandsflug tékkneska flugfélagsins Czech Airlines takmarkast ekki lengur við sumarferðir milli Íslands og Prag. Í vetur mun félagið fljúga sömu vélinni til bæði Kaupmannahafnar og Keflavíkurflugvallar.

Frá Prag.

Kaupmannahöfn er sú borg sem næst oftast er flogið til frá Íslandi og í vetur mun ferðunum fjölga umtalsvert í kjölfar óvenjulegrar innkomu tékkneska flugfélagsins  Czech Airlines. Stjórnendur þess sjá nefnilega tækifæri í að fljúga til Íslands og Danmerkur í sömu ferðinni og er fyrsta brottför á dagskrá í lok október. Þotur félagsins munu í framhaldinu fljúga daglega hingað til lands í vetur með viðkomu á Kastrup.

Félagið hóf sumarflug til Íslands árið 2017 og hefur jafnt og þétt verið að bæta við það flug, bæði með því að lengja tímabili ásamt því að auka tíðnina. Isavia hefur kynnt forsvarsfólki flugfélagsins möguleikan á því að fljúga hingað til lands allt árið um kring og nú er það orðið að veruleika.

Aðspurð um þessa nýjung þá segir Vladimíra Dufková, blaðafulltrúi Smartwings Group, eiganda Czech Airlines, að markmiðið hafi verið að auka þjónustuna á flugleiðinni milli Prag og Kaupmannahafnar en um leið að halda tengingunni til Íslands opinni allt árið um kring. Eftir að hafa metið kostina þá hafi lausnin verið sú að sameina flug til beggja borga í einni ferð en farþegar geta valið hvort þeir fljúga héðan alla leið til Prag eða kaupi aðeins miða til Kaupmannahafnar.

Áætlunin gerir ráð fyrir daglegum brottförum frá Prag klukkan 18:05 og lent verður í Kaupmannahöfn áttatíu mínútum síðar. Eftir um eins og hálfs klukkutíma stopp í dönsku höfuðborginni er flogið áfram til Íslands og lent þar um hálf ellefu um kvöld. Brottför frá Íslandi er svo á dagskrá klukkan hálf fimm morgunin eftir og lent er í Prag rétt fyrir ellefu eftir stopp í Kaupmannahöfn. Þetta þýðir að þota tékkneska flugfélagsins og áhöfn dvelja hér á landi yfir nótt en hingað til hefur þess háttar ekki tíðkast meðal erlendra flugfélaga sem hingað fljúga.

Það er ljóst að með þessari nýjung þá gefst farþegum sem þurfa að ná tengiflugi frá Kaupmannahöfn ný valkostur. Fyrsta ferð dagsins á vegum Icelandair lendir nefnilega ekki nógu snemma fyrir aðal morguntraffíkina frá Kastrup en þeir sem fljúga með Czech Airlines koma í tíma. Og þar sem tékkneska flugfélagið er hluti af Skyteam bandalaginu þá geta farþegar á einfaldan hátt bókað tengiflug áfram með fjölda flugfélaga.

 

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …