Kaupmannahöfn er sú borg sem næst oftast er flogið til frá Íslandi og í vetur mun ferðunum fjölga umtalsvert í kjölfar óvenjulegrar innkomu tékkneska flugfélagsins Czech Airlines. Stjórnendur þess sjá nefnilega tækifæri í að fljúga til Íslands og Danmerkur í sömu ferðinni og er fyrsta brottför á dagskrá í lok október. Þotur félagsins munu í framhaldinu fljúga daglega hingað til lands í vetur með viðkomu á Kastrup.
Félagið hóf sumarflug til Íslands árið 2017 og hefur jafnt og þétt verið að bæta við það flug, bæði með því að lengja tímabili ásamt því að auka tíðnina. Isavia hefur kynnt forsvarsfólki flugfélagsins möguleikan á því að fljúga hingað til lands allt árið um kring og nú er það orðið að veruleika.
Aðspurð um þessa nýjung þá segir Vladimíra Dufková, blaðafulltrúi Smartwings Group, eiganda Czech Airlines, að markmiðið hafi verið að auka þjónustuna á flugleiðinni milli Prag og Kaupmannahafnar en um leið að halda tengingunni til Íslands opinni allt árið um kring. Eftir að hafa metið kostina þá hafi lausnin verið sú að sameina flug til beggja borga í einni ferð en farþegar geta valið hvort þeir fljúga héðan alla leið til Prag eða kaupi aðeins miða til Kaupmannahafnar.
Áætlunin gerir ráð fyrir daglegum brottförum frá Prag klukkan 18:05 og lent verður í Kaupmannahöfn áttatíu mínútum síðar. Eftir um eins og hálfs klukkutíma stopp í dönsku höfuðborginni er flogið áfram til Íslands og lent þar um hálf ellefu um kvöld. Brottför frá Íslandi er svo á dagskrá klukkan hálf fimm morgunin eftir og lent er í Prag rétt fyrir ellefu eftir stopp í Kaupmannahöfn. Þetta þýðir að þota tékkneska flugfélagsins og áhöfn dvelja hér á landi yfir nótt en hingað til hefur þess háttar ekki tíðkast meðal erlendra flugfélaga sem hingað fljúga.
Það er ljóst að með þessari nýjung þá gefst farþegum sem þurfa að ná tengiflugi frá Kaupmannahöfn ný valkostur. Fyrsta ferð dagsins á vegum Icelandair lendir nefnilega ekki nógu snemma fyrir aðal morguntraffíkina frá Kastrup en þeir sem fljúga með Czech Airlines koma í tíma. Og þar sem tékkneska flugfélagið er hluti af Skyteam bandalaginu þá geta farþegar á einfaldan hátt bókað tengiflug áfram með fjölda flugfélaga.