Samfélagsmiðlar

Þotur fá andlitslyftingu og stjórnendum fækkað

Forstjóri SAS kynnti í morgun nýtt útlit á þotum flugfélagsins. Um mánaðarmótin fækkar svo framkvæmdastjórum fyrirtækisins.

Svona eiga allar SAS þotur að líta út fyrir árslok 2024.

Splunkunýjar Airbus þotur í nokkrum stærðarflokkum bætast við flota skandinvíska flugfélagsins SAS á næstu árum. Og þær verða ekki málaðar á sama hátt og flugvélarnar sem fyrir eru. Bláir liturinn á stélinu mun nefnilega ná yfir mun stærra svæði en áður og hreyflarnir verða ekki lengur rauðir heldur silfurlitaðir. Heiti félagsins verður jafnframt silfrað á búknum. Þetta er meðal þeirra breytinga sem kynntar voru við athöfn í Kaupmannahöfn í morgun. Núverandi útlit á flugflota SAS hefur verið við lýði í tuttugu og eitt ár og því kominn tími á andlitslyftingu að mati stjórnenda félagsins.

Sem fyrr segir er endurnýjun flugflota SAS helsta kveikjan að nýja útlitinu en félagið hefur pantað nýjar Airbus þotur af gerðunum A350, A320neo, A330 og A321LR. Þær verða afhentar í áföngum fram til ársins 2023 og ári síðar er ætlunin að allar eldri þotur verði líka komnar í nýju litina. Í tilkynningu frá SAS segir að málningin sem notuð verður þekji mun betur en sú eldri og þar með þurfi ekki eins margar umferðir sem létti vélarnar töluvert og dragi enn frekar úr eldsneytisþörf.

Á sama hátt ætlar SAS að létta stjórnun fyrirtækisins með því að fækka í framkvæmdastjórn nú um mánaðamótin. Eftir breytingar verða þar sex framkvæmdastjórar auk forstjórans en til samanburðar eru níu í framkvæmdastjórn Icelandair. SAS flutti um 29 milljónir farþega í fyrra en rétt rúmlega fjórar milljónir flugu með Icelandair.

 

Nýtt efni

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …