Samfélagsmiðlar

Vestnorden haldin á Reykjanesi á næsta ári

Búist er við sex til sjö hundrað manns á Vestnorden ferðakaupstefnuna sem fram fer næsta haust í Reykjanesbæ.

Vestnorden ferðakaupstefnan mun fara fram í Reykjanesbæ 6. – 8. október 2020. Ferðamálasamtök Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála, standa að Vestnorden. Löndin þrjú skipta með sér umsjón með ferðakaupstefnunni en hún er haldin annað hvert á á Íslandi. Um er að ræða stærsta viðburðinn sem haldinn er í ferðaþjónustu á Íslandi samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Íslandsstofu og verður þetta í 35. skipti sem Vestnorden fer fram.

„Vestnorden er mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustu þessara þriggja landa. Hingað koma ferðaheildsalar frá öllum heimshornum til að stofna til eða styrkja sambönd við íslenska, grænlenska og færeyska ferðaþjónustuaðila. Við sjáum þess merki á hverju ári hvernig ferðaþjónustan hefur eflst og þróast og það er gaman að fá að vera partur af því,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður sviðs áfangastaðarins hjá Íslandsstofu.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanessbæjar segir: „Það er okkur mikið gleðiefni að að bjóða gesti og aðstandendur Vestnorden 2020 velkomna til Reykjanesbæjar. Kaupstefnan mun gefa okkur tækifæri til að sýna hvað Reykjanesbær og Reykjanesið hefur uppá að bjóða fyrir ferðamenn og aðila í ferðaþjónustu. Sem hluti af Reykjanes UNESCO Geopark, býður Reykjanesbær uppá fjölbreytta upplifun og afþreyingu hvort heldur sem er í gegnum söfn sín og menningu eða ægifagra náttúru. Við erum því full tilhlökkunar að taka á móti gestum Vestnorden 2020“.

Nýtt efni

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …