Samfélagsmiðlar

75 þúsund færri farþegar um innanlandsflugvellina

Áfram fækkar þeim sem fljúga innanlands og í ljósi niðurskurðar hjá flugfélögunum gæti þessi þróun haldið áfram næstu misseri.

Frá flugvellinum á Ísafirði.

Fyrstu níu mánuði ársins flugu rétt um 540 þúsund farþegar til og frá innanlandsflugvöllum landsins. Samdrátturinn nemur um tólf af hundraði en þess ber að geta að farþegar sem nýta sér alþjóðaflug frá Reykjavíkurflugvelli og Akureyri eru meðtaldir. Um minnstu flugvelli landsins fækkaði farþegum um fimmtung fyrstu níu mánuðina eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan en samdrátturinn á Akureyri var töluvert minni eða 6,6 prósent.

Þróunin í nýliðnum september var álíka og aðra mánuði ársins því þá nam fækkunin um 11 prósentum. Líkt og endurtekið hefur komið fram þá hefur rekstur Air Iceland Connect og flugfélagsins Ernis verið þungur síðustu misseri. Stjórnendur fyrirtækjanna hafa brugðist við með því að fækka ferðum og selja flugvélar.

Í drögum að grænbók um stefnu stjórnvalda í málefnum flugrekstrar, sem kom út í sumar, er bent á að fjöldi farþega í innanlandsflugi hafi gengið í sveiflum á síðustu áratugum. Í skýrslunni er til að mynda áætlað að opnun Landeyjahafnar og auknar álögur á  innanlandsflug hafi dregið úr fjölda farþega um 70 þúsund. „Á tímabilinu 2009 til 2013 þrefölduðust álögur vegna hækkana á lendingargjöldum, kolefnisskatti og flugleiðsögugjaldi,“ segir í drögunum og þar jafnframt bent á að rannsóknir sýni að 10 prósent hækkun fargjalda valdi um 5 til 10 prósent fækkun í fjölda farþega.

Erlendir ferðamenn munu standa undir fimmtungi þess fjölda sem nýtir sér innanlandsflug samkvæmt því sem fram kemur í skýrslunni. Í því samhengi má benda á að fyrstu níu mánuðina árið 2012, þegar ferðamannastraumurinn var þyngjast hratt, þá komu hingað um 537 þúsund erlendir ferðamenn. Á sama tímabili fóru í heildina 629 þúsund farþegar um innanlandsflugvellina. Núna voru þeir rétt um 540 þúsund en aftur á móti hafa komið hingað tæplega 1,6 milljón erlendra ferðamanna í ár.

Nú getur þú tekið þátt í að styrkja og efla útgáfu Túrista

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …