Áætlunarferðunum héðan til útlanda fækkaði um 28 prósent í september eða um tuttugu og sex á degi hverjum að jafnaði. Þessi mikla niðursveifla hefur þó lítil áhrif á hvaða borgir það eru verma listann yfir þær tíu borgir sem oftast er flogið til. Þar eru höfuðborgir Bretlands og Danmerkur sem fyrr í toppsætunum en eins og sjá má á listanum þá hefur dregið verulega úr fjölda ferða til borganna tíu að Ósló undanskilinni.