Hagnaður Icelandair nam 7,5 milljöðrum króna á þriðja ársfjórðungi samkvæmt tilkynningu sem félagið sendi nú í kvöld. Þetta er sama niðurstaða og í fyrir sama tímabil í fyrra. Þá þótti afkoman ekki standa undir væntingum enda nokkru minni hagnaður en árin á undan. Skýringin á lakari niðurstöðu var sögð hátt eldsneytisverð og lækkun farþegatekna milli ára.
Núna litar kyrrsetning MAX þotanna uppgjörið en fram kemur í tilkynningu frá Icelandair að gengið hafi verið frá samkomulagi um skaðabætur frá Boeing í dag. Þetta er í annað skipti í haust sem þess háttar samkomulag er gert en ekki hefur verið gefið upp um hvaða upphæðir er að ræða.
„Góður árangur hefur náðst í rekstri Icelandair Group, þrátt fyrir að uppgjör fjórðungsins hafi litast verulega af áhrifum kyrrsetningar MAX vélanna. Sveigjanleiki í leiðakerfinu hefur gert okkur kleift að færa tíðni á milli áfangastaða og einbeita okkur að því að nýta flugflotann á arðbærum leiðum. Við höfum lagt áherslu á ferðamannamarkaðinn til Íslands að undanförnu til að mæta mikilli eftirspurn og munum halda því áfram. Íslensk ferðaþjónusta hefur notið góðs af þessari áherslubreytingu en við fluttum 30% fleiri farþega til landsins yfir háannatímann í ár en í fyrra,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu.
Hann bætir því við að horfur fyrir árið 2019 hafa batnað og gerum við ráð fyrir talsverðum afkomubata á fjórða ársfjórðungi. „Grunnrekstur félagsins er að styrkjast, eiginfjárstaða nam rúmlega 62 milljörðum króna og lausafjárstaða tæplega 30 milljörðum króna í lok fjórðungsins. Við erum því vel í stakk búin til að ná markmiðum okkar um að bæta arðsemi félagsins á komandi misserum.“