Í morgun var á dagskrá síðasta áætlunarferð Delta flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli til New York í ár. Félagið tekur svo upp þráðinn á ný í Íslandsfluginu þegar sumaráætlunin hefst en þetta er í fyrsta sinn í nokkur ár sem bandaríska flugfélagið heldur ekki úti ferðum hingað allt árið um kring. Á sama tíma er ljóst að ekkert verður af farþegaflugi hins nýja WOW air til Washington borgar.
Í fréttum Rúv í dag var haft eftir Gunnari Steini Pálssyni, talsmanni Michele Ballarin, að flugfélagið fari í loftið innan nokkurra vikna en að áherslan í fyrstu verði á fraktflutninga milli Keflavíkur og Washington. Þar með verður að teljast ólíklegt að Icelandair fái samkeppni í áætlunarflugi til Bandaríkjanna á komandi vetri því ennþá liggja ekki fyrir áætlanir þeirra sem vinna að stofnun flugfélagsins sem hefur vinnuheitið WAB. Þetta verður í fyrsta sinn síðan veturinn 2015-2016 sem Icelandair er eitt um reglulegar ferðir milli Íslands og Norður-Ameríku.
Þessi staða hefur þó legið í loftinu því núna eru nærri tveir mánuðir frá blaðamannafundi Ballarin á Grillinu þar sem hún boðaði endurreisn WOW. Þá stóð til að miðasala hæfist vikuna eftir en það gekk ekki eftir. Nýverið var jómfrúarferðinni svo frestað frá október og fram í desember en núna liggur fyrir að það verða þá aðeins frakt um borð en ekki farþegar.
Hið upprunalega WOW air stundaði líka vöruflutninga og þá í gegnum systurfélag sitt Cargo Express. Samkvæmt tölum frá bandarískum flugmálayfirvöldum þá var WOW með um fjórðungs hlutdeild í fraktflutningum í flugi milli Íslands og Bandaríkjanna í fyrra. Þrjú af hverjum fjórum tonnum sem flogið var með milli landanna tveggja var ferjað í þotum Icelandair því hlutdeild bandarísku flugfélaganna í vöruflutningum var sáralítil.