Samfélagsmiðlar

Icelandair þá eitt um Ameríkuflugið í vetur

Nú liggur fyrir að fyrst um sinn mun hið endurreista WOW air einbeita sér að vöruflutningum. Þar með verður Icelandair eitt um farþegaflug vestur um haf næstu mánuði.

newyork loft Troy Jarrell

Þeir sem ætla til New York í vetur hafa aðeins úr ferðum Icelandair til JFK og Newark að velja.

Í morgun var á dagskrá síðasta áætlunarferð Delta flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli til New York í ár. Félagið tekur svo upp þráðinn á ný í Íslandsfluginu þegar sumaráætlunin hefst en þetta er í fyrsta sinn í nokkur ár sem bandaríska flugfélagið heldur ekki úti ferðum hingað allt árið um kring. Á sama tíma er ljóst að ekkert verður af farþegaflugi hins nýja WOW air til Washington borgar.

Í fréttum Rúv í dag var haft eftir Gunnari Steini Pálssyni, talsmanni Michele Ballarin, að flugfélagið fari í loftið innan nokkurra vikna en að áherslan í fyrstu verði á fraktflutninga milli Keflavíkur og Washington. Þar með verður að teljast ólíklegt að Icelandair fái samkeppni í áætlunarflugi til Bandaríkjanna á komandi vetri því ennþá liggja ekki fyrir áætlanir þeirra sem vinna að stofnun flugfélagsins sem hefur vinnuheitið WAB. Þetta verður í fyrsta sinn síðan veturinn 2015-2016 sem Icelandair er eitt um reglulegar ferðir milli Íslands og Norður-Ameríku.

Þessi staða hefur þó legið í loftinu því núna eru nærri tveir mánuðir frá blaðamannafundi Ballarin á Grillinu þar sem hún boðaði endurreisn WOW. Þá stóð til að miðasala hæfist vikuna eftir en það gekk ekki eftir. Nýverið var jómfrúarferðinni svo frestað frá október og fram í desember en núna liggur fyrir að það verða þá aðeins frakt um borð en ekki farþegar.

Hið upprunalega WOW air stundaði líka vöruflutninga og þá í gegnum systurfélag sitt Cargo Express. Samkvæmt tölum frá bandarískum flugmálayfirvöldum þá var WOW með um fjórðungs hlutdeild í fraktflutningum í flugi milli Íslands og Bandaríkjanna í fyrra. Þrjú af hverjum fjórum tonnum sem flogið var með milli landanna tveggja var ferjað í þotum Icelandair því hlutdeild bandarísku flugfélaganna í vöruflutningum var sáralítil.

Nú getur þú tekið þátt í að styrkja og efla útgáfu Túrista

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …