Samfélagsmiðlar

Líkur á að hærri fargjöld vegi þungt

Horfur í rekstri Icelandair Group á árinu 2019 eru betri en gert hafði verið ráð fyrir. Þó lítið sé rætt um hærri tekjur í tilkynningu félagsins þá eru vísbendingar um að farmiðaverðið hafi verið á uppleið. Farþegunum hefur líka fjölgað.

Hvort tekjur Icelandair á hvert sæti hafa aukist kemur í ljós þegar félagið birtir uppgjör sitt í lok vikunnar.

Á fimmtudaginn mun Icelandair Group birta uppgjör sitt fyrir þriðja og arðbærasta fjórðung ársins. Niðurstaðan liggur nú að mestu leyti fyrir samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í gærkvöld. Þar segir að miðað við fyrirliggjandi forsendur þá hafi svokölluð EBIT afkoma fyrir árið verið breytt úr tapi upp á 70 til 90 milljónir bandaríkjadala í neikvæða afkomu upp á 35 til 55 milljónir dala. Það jafngildir taprekstri upp á 4,4 til 6,9 milljarða króna.

Skýringin á þessum bata, samkvæmt tilkynningunni, liggur meðal annars í því að kostnaður vegna innleiðingar á nýjum MAX þotum fellur ekki á þessu ári heldur á því næsta. Umbætur á leiðakerfi og bætt tekjustýring hafi líka skilað árangri samkvæmt því sem segir í fyrrnefndi tilkynningu. Gera má ráð fyrir að þar sé meðal annars vísað til aukinnar áherslu á farþega á leið til og frá Íslandi í stað tengifarþega. Og ekki er ósennilegt að sú þróun hafi leitt til þess að meðalfargjöldin hafi hækkað því samkeppni í flugi til og frá Keflavíkurflugvelli hefur dregist verulega saman eftir fall WOW air.

Yfir háannatímann í fyrra var WOW air einnig í baráttu upp á líf og dauða og í uppgjöri Icelandair fyrir þriðja ársfjórðung 2018 var versnandi afkoma m.a. sögð skrifast á lág fargjöld. Núna gætu bættar horfur skrifast á hærri fargjöld. Það eru nefnilega vísbendingar um að fargjöld fari hækkandi í löndunum í kringum okkur. Þannig hefur meðalfargjaldið hjá SAS og Norwegian hækkað síðustu mánuði og sú þróun hefur ekki ósennilega skilað sér til Icelandair nú þegar félagið er á ný komið með yfirburðastöðu á Keflavíkurflugvelli.

Það má einnig horfa til þess að sætanýtingin hjá Icelandair hefur lækkað síðustu mánuði sem gæti verið enn ein vísbendingin um að félagið hafi rukkað meira fyrir hvert sæti en á sama tíma í fyrra. Farþegum félagsins hefur þó fjölgað og þannig nýttu um 86 þúsund fleiri farþegar sér ferðir félagsins á þriðja ársfjórðungi samkvæmt mánaðarlegum flutningstölum. Ef þessi stóri hópur hefur borgað jafn mikið fyrir sæti, farangur og veitingar og þeir sem ferðuðust með félaginu á sama tíma í fyrra þá hafa þessir viðbótarfarþegar skilað félaginu um 23 milljónum dollara í tekjur. Það jafngildir um 2,9 milljörðum króna. Sú tala er væntanlega aðeins hærri þar sem fargjöldin hafa líklega hækkað sem fyrr segir.

Og þessi verðþróun kann líka að vera skýringin á því að horfurnar fyrir síðasta ársfjórðung eru nú betri en fyrir sama tíma í fyrra. Hvort það hafi svo áhrif á fyrsta fjórðung næsta árs á eftir að koma í ljós en þá fellur reyndar til þessi fyrrnefndi kostnaður vegna innleiðingar MAX þotanna sem nú hefur verið frestað.

Nú getur þú tekið þátt í að styrkja og efla útgáfu Túrista

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …