Það er óhætt að segja að fjárfestar hafi tekið nýjasta ársfjórðungs uppgjöri Norwegian vel. Gengi bréfanna hækkaði strax um nærri 21 prósent sem skrifast aðallega á að hagnaður félagsins á síðasta ársfjórðungi var umfram væntingar greiningaraðila. Svonefndur EBITDAR hagnaður (afkoma að teknu tillti til vaxtagreiðslna og -tekna, skattgreiðslna og leigugreiðslna) á fjórðungnum var 4,4 milljarðar norskra króna sem samsvarar um 60 milljörðum íslenskra króna. Það er metafkoma hjá félaginu á þessum arðbærasta fjórðungi ársins.
Þessi jákvæða þróun skrifast meðal annars á hærri meðalfargjöld og eins eru umsvifamiklar sparnaðaraðgerðir farnar að skila árangri. Erfið lausafjárstaða félagsins hefur líka batnað í kjölfar á sölu á þotum og hlutabréfum í banka sem kenndur er við flugfélagið sjálft. Einnig tilkynnti Norwegian í morgun um langþráðan samning við kínverskan banka um stofnun sameiginlegs félagsins sem taka á yfir þær Airbus þotur sem Norwegian á pantaðar. Þær fyrstu verða afhentar í byrjun næsta árs. Eins og staðan er núna er ætlunin að leigja þær áfram í stað þess að Norwegian taki þær inn í sinn flota sem í dag samanstendur af Boeing þotum eingöngu.
Og sú staðreynd að Norwegian hefur lagt allt sitt traust á bandaríska flugvélaframleiðandann skapar mikla óvissu. Það kom nefnilega fram í máli Geir Karlsen forstjóra á fundinum að í vetur munu sjö Boeing Dreamliner þotur sitja á jörðu niðri vegna viðhalds á hreyflum. Á sama tíma gerir félagið ekki ráð fyrir Boeing MAX þotunum fyrr í en í lok mars þegar sumaráætlun félagsins hefst. Til samanburðar gera áform Icelandair ennþá ráð fyrir þotunum í ársbyrjun. Karlsen nefndi það einnig að vegna þess hve staða MAX þotanna er óljós þá er erfitt að endurskipuleggja flotann með því að selja fleiri eldri flugvélar eins og upphaflega hafði verið gert ráð fyrir.
Þegar Karlesen forstjóri hafði lokið máli sínu þá steig í pontu Daninn Niels Smedegaard sem tók við sem stjórnarformaður í Norwegian fyrr á þessu ári. Og segja má að tónninn í erindi hans hafi verið þungur. Hann kynnti nefnilega til sögunnar nýja stefnumörkun þar sem marmiðið væri að nýta þá möguleika sem fyrir eru til að auka tekjurnar en ekki síður til að skera niður. Fyrsta skrefið á þeirri vegferð er tíu prósent samdráttur í framboði strax á næsta ári. Dró Smedegaard ekki fjöður yfir að stjórn og stjórnendur félagsins yrðu harðlega gagnrýnd þegar að því kæmi að tilkynna um lokanir á flugleiðum og annan niðurskurð sem því fylgdi. Hann fór þó ekki nánar út í hvar yrði helst borið niður en miðað við að Norwegian tekur í gagnið fjórar nýjar Dreamliner þotur á næsta ári þá gætu flugleiðir innan Evrópu frekar dottið út en þær lengri yfir Atlantshafið.
Í dag flýgur Norwegian til Íslands frá Tenerife, Barcelona, Las Palmas, Ósló og Alicante. Flugið frá Madríd leggst af í byrjun næsta árs.