„Fjölgun skiptifarþega er merkur atburður í flugsögu Íslands,“ segir í skýrslu sem unnin var fyrir Isavia um verðmæti þess hóps farþega sem millilendir á Keflavíkurflugvelli á leið milli Evrópu og Norður-Ameríku. Þessi úttekt var birt í nóvember 2017 en þá hafði fjöldi skiptifarþega vaxið hratt árin á undan og spáði skýrsluhöfundur áframhaldandi uppsveiflu næstu ár. Fjöldinn í ár átti þannig að vera rúmar fjórar milljónir.
Miðað við talningu á skiptifarþegum í ár er aftur á móti útlit fyrir að talan verði um helmingi minni eða rétt rúmar tvær milljónir. Það er álíka fjöldi og allt árið 2016. Fall WOW air er skiljanlega megin skýringin á þessari þróun en einnig sú staðreynd að nú einbeitir Icelandair sér helst að farþegum á leið til og frá landinu. Þar með hefur hópur tengifarþega dregist saman í ár og í október nam fækkunin fjórðungi.
Í heildina fækkað farþegum á Keflavíkurflugvelli um nærri 35 prósent í síðasta mánuði sem er litlu meira en í september. Samdrátturinn í haust hefur verið mun meiri en í sumar og vor og munar þar miklu um fyrrnefnda fækkun skiptifarþega. Þeir voru um 123 þúsund í Leifsstöð í október en 328 þúsund á sama tíma í fyrra.