Þegar horft er til þess hversu margir ferðamenn heimsækja París á ári hverju og hversu stór borgarlandið er þá lætur nærri að 453 ferðamenn séu um hvern ferkílómetra þar í borg. Í Barcelona eru þeir 234 á ferkílómetra en þéttleikinn er ennþá meiri í Palma, Phuket og Pattaya eins og sjá má.
Svona úttektum skal þó tekið með fyrirvara og meðal annars hafa í huga að ferðamannastramurinn er mismunandi eftir árstíðum.
Flestir ferðamenn á ferkílómetra:
- Phuket, Taílandi (1965 ferðamenn)
- Palma, Mallorca (1127)
- Pattayaa, Taílandi (1066)
- París (453)
- Barcelona (234)