Í október í fyrra var bilið á milli umsvifa Icelandair og WOW air lítið. Þá flugu þotur Icelandair að jafnaði þrjátíu og þrjá ferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli eða rétt um sex brottförum meira en WOW air. Munurinn á milli félaganna tveggja hafði sjaldan verið eins lítill.
Eftir fall WOW air er staðan gjörbreytt og nú stendur Icelandair undir bróðurparti allra ferða þó fjöldi brottfara á vegum félagsins hafi nærri staðið í stað í síðasta mánuði. Á sama tíma bættu erlendu félögin litlu við og því fækkaði áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli um 34 prósent í síðasta mánuði samkvæmt talningu Túrista.