Í gærkvöldi gaf sjónvarpskonan Ellen DeGeneres hundrað og fimmtíu áhorfendum í sérstökum jólaþætti sínum flugmiða með Icelandair til Íslands fyrir tvo. Með í pakkanum fylgdi gisting í fimm daga á Icelandair hótelum og ferð í Bláa Lónið.
Stjónvarpsstjarnan og fyrirsætan Chrissy Teigen aðstoðaði Ellen að afhenda gjafirnar. Þátturinn var sýndur á besta tíma á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Icelandair.
„Jólaþættirnir, “Ellen’s Greatest Night of Giveaways”, eru þrír talsins og er líklegt að um 10 milljónir manna horfi á hvern þátt og uppsafnað áhorf nái til 25-30 milljónir manna. Þetta er því gríðarleg landkynning en Ellen nýtur mikilla vinsælda og er með um 80 milljónir fylgjendur á Twitter og Instagram, og ríflega 30 milljónir á Facebook og Youtube. Undirbúningurinn fyrir þetta innlegg í þáttinn var unnið með Íslandsstofu,“ kemur fram í tilkynningu.
Innslagið má sjá hér fyrir neðan: