Icelandair hefur gengið frá lánasamningi upp á 4,3 milljarða króna við bandaríska bankann CIT Bank. Um er að ræða endurfjármögnun í kjölfar uppgreiðslu skuldabréfaflokks félagsins fyrr á þessu ári samkvæmt því sem segir í tilkynningu. Þar er haft eftir Evu Sóleyju Guðbjörnsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Icelandair Group, að fjármögnunin renni enn styrkari stoðum undir góða fjárhagsstöðu Icelandair Group.
Þetta er í annað sinn í ár sem fyrirtækið tilkynnir um stóra lántöku. Í mars síðastliðnum fékk Icelandair Group tíu milljarða króna lán hjá Landsbankanum gegn veði í tíu farþegaþotum í eigu flugfélagsins. Nýja lánið er einnig með veð í flugvélum félagsins. Það staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í svari til Túrista.
Líkt og áður hefur komið fram er stefnt að því að klára sölu á 75 prósent hlut í Icelandairhótelunum til malasísku samsteypunnar Berjaya Group nú fyrir áramót. Ásdís staðfestir að ennþá sé unnið út frá því að klára söluna fyrir lok árs.