Það sem af er ári hefur farþegafjöldinn á innanlandsflugvöllum landsins farið niður um 12 prósent. Samdrátturinn í nýliðnum nóvember var þó mun minni eða 5,7 prósent. Í farþegum talið fækkaði þeim um nærri þrjú þúsund og þrjú hundruð í síðasta mánuði og nam þá heildarfjöldinn rúmum 53 þúsund farþegum.
Eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan þá voru sveiflurnar mismunandi eftir flugvöllum en á þeim minnstu fjölgaði farþegunum um tíund. Í mánaðarlegum samantektum Isavia er þó aðeins að finna flokkun farþega á stærstu flugvöllunum og þeir minni eru allir settir undir einn hatt.