Það voru 611 þúsund íslensk vegabréf talin við vopnaleitina á Keflavíkurflugvelli í fyrra. Aðeins tvisvar sinnum áður hafa þau verið fleiri en það var einmitt árin tvö þar á undan eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Nýliðið ferðaárið var því sögulega mjög gott og til að mynda fóru þrjátíu prósent fleiri út í fyrra en árið 2007. Það ár setti landinn einmitt ferðamet sem stóð allt til ársins 2016.
Farþegaspá Isavia fyrir þetta ár gerir aftur á móti ráð fyrir samdrætti upp á 7 til 8 prósent þegar kemur að ferðalögum Íslendinga út í heim. Ef það gengur eftir þá fækkar íslensku brottfararfarþegunum um 43 til 49 þúsund í ár. Það þýðir að árið í ár verður ögn betra en árið 2016 ef aðeins er horft til fjölda íslenskra farþega á leið út í heim.
Sem fyrr segir þá byggir talning Ferðamálastofu á fjölda íslenskra farþega á því hversu margir sýna íslenskvegabréf við vopnaleitina í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Íslendingar búsettir í útlöndum eru því meðtaldir. Á sama hátt skekkja útlendingar búsettir á Íslandi talningu á erlendum ferðamönnum eins og ítrekað hefur verið fjallað um hér á síðum Túrista.