Nú eru ellefu mánuðir liðnir frá því að Boeing MAX þota Ethopian Airlines hrapaði til jarðar með þeim afleiðingum að 157 manns létu lífið. Í kjölfarið voru allar flugvélar af gerðunum Boeing MAX 8 og 9 kyrrsettar. Nokkrum mánuðum áður hafði nefnilega þota Lion Air farist með 189 manns innanborðs og aðdragandi slysanna tveggja þótti strax mjög líkur. Síðar hefur komið í ljós að rekja mátti orsakir slysanna til sérstaks hugbúnaðar í MAX þotunum.
Þegar kyrrsetningin var sett á í mars í fyrra þá voru tæplega fjögur hundruð MAX þotur komnar í notkun hjá flugfélögum víð og dreif um heiminn. Icelandair hafði til að mynda fengið til sín sex af þeim sextán þotum sem félagið hefur pantað. Framleiðsla á nýjum MAX þotum hélt svo áfram í verksmiðjum Boeing út allt síðasta ár og nú standa um þrjú hundruð þotur tilbúnar á flugbrautum og bílastæðum í kringum verksmiðjur Boeing og víðar. Þrjár þeirra hafa verið málaðar í litum Icelandair.
Að koma þessum sjö hundrað flugvélum í gagnið á ný mun „taka nokkra ársfjórðunga“ að mati Randy Tinseth, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Boeing. Þetta kom fram í viðtali við hann hjá fréttaveitunni Bloomberg í gær. Þar sagði hann jafnframt að framleiðsla á MAX þotunum yrði ekki sett í gang á ný fyrr en þær vélar sem fullsmíðaðar eru verði komnar í notkun.
Ein ástæða þess að ferlið mun taka svona langan tíma er sú nýja krafa um þeir flugmenn sem fljúga eiga MAX þotunum verði að gangast undir þjálfun í flughermi. Þess háttar hermar eru þó af skornum skammti en einn þeirra er í eigu Icelandair. Sú staðreynd gæti því flýtt fyrir því að félagið getið tekið sínar MAX þotur í gagnið. Aftur á móti stefnir í að biðin eftir þeim sjö þotum sem einnig hafa verið pantaðar af Icelandair verði ennþá lengri.