Samfélagsmiðlar

Nýja Íslandsflugið frá Frakklandi fær góðar viðtökur

Það lítur út fyrir að franska borgin Nantes verði eina nýjungin á sumaráætlun Keflavíkurflugvallar í ár.

Frá Nantes.

Nú í sumar mun hið fransk-hollenska Transavia ekki aðeins fljúga hingað frá París og Amsterdam heldur líka Nantes í Frakklandi líkt og Túristi hefur áður greint frá. Aðeins verða í boði vikulegar ferðir yfir hásumarið til Nantes og af farmiðaverðinu að dæma þá hefur salan gengið vel. Alla vega er áberandi að ódýru fargjöldin eru vandfundin. Aðspurð um viðtökurnar þá játar talskona Transavia því að þessi nýja flugleið lofi góðu.

„Það er mikill áhugi á þessum áfangastað [Íslandi] hjá íbúum Nantes og nágrenni. Fólk á svæðinu kann að meta að geta flogið beint til Íslands  í stað þess að þurfa að millilenda,“ segir Cécile Nomdedeu frá Transavia. Hún bætir því við að Íslandsflugið komi til móts við þá sem hafa áhuga á áfangastöðum þar sem nátturan er í aðalhlutverki.

Fyrir áhugasama Íslendinga um ferðalög til Nantes og nærsveitir þá er langódýrast að fljúga út í fyrstu ferðinni þann 6. júlí því þá kostar ódýrasti miðinn rétt um 5.400 krónur. Heimferðin er þó um níu sinnum dýrari en þá er valkostur að fljúga heldur tilbaka frá annarri borg, til að mynda París eða Brussel.

NÚ GETUR ÞÚ STUTT ÚTGÁFU TÚRISTA

Nýtt efni

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …

Xiaomi er hraðvaxta hátæknifyrirtæki í Beijing í Kína, stofnað fyrir 14 árum af frumkvöðlinum og milljarðamæringnum Lei Jun og félögum hans. Á síðasta ári var fyrirtækið í þriðja sæti á lista þeirra sem seldu flesta farsímana - næst á eftir Samsung og Apple. Xiaomi framleiðir og selur margskonar annan háþróaðan tæknibúnað og neytendavörur en samdráttur …

Fyrir rúmu ári var greint frá því að þýska Lufthansa-samsteypan hefði áhuga á að kaupa 40 prósenta hlut í ítalska þjóðarflugfélaginu ITA en niðurstaða hefur ekki enn fengist. Í janúar hóf Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins rannsókn á samkeppnisáhrifum þess að Þjóðverjarnir eignuðust stóran hlut í ítalska flugfélaginu sem lengi hefur verið stjórnvöldum á Ítalíu höfuðverkur.  Nú í …

Fyrir mánuði sendi Storytel frá sér fréttatilkynningu þar sem kynnt var ný þjónusta fyrir notendur. Brátt eiga hlustendur hljóðbóka möguleika á að velja nýjan lesara ef þeim líkar ekki innlesturinn. Valraddirnar eru allar skapaðar af vélmennum eða svokölluðum gervigreindarupplesurum.  Þetta nýja verkfæri Stoyrtel er tekið í gagnið vegna þess að 89 prósent af þeim sem …