Síðustu daga hafa stjórnendur SAS og Norwegian, tveggja stærstu flugfélaga Norðurlanda, tilkynnt um verulegan samdrátt í flugi og samhliða því verður fjöldi starfsmanna sendur heim. Hjá Norwegian er um að ræða helming starfsfólksins eða um fimm þúsund manns. Tvöfalt fleiri fara nú í leyfi frá vinnu sinni hjá SAS eða níu af hverju tíu starfsmönnum félagsins.
Stærsta hluta flugflota félagsins verður líka haldið á jörðu niðri frá og með morgundeginum því nærri allt áætlunarflug SAS verður lagt niður tímabundið líkt og forstjóri félagsins tilkynnti á fundi með blaðamönnum seinnipartinn í dag. Í dag gáfu stjórnendur Widerøe, sem er stórtækt í innanlandsflugi í Noregi, svo út að helmingur starfsmann þess yrði sendur heim. Það jafngildir eitt þúsund manns.
Reglur um svona tímabundin leyfi eru mismunandi eftir löndum Skandinavíu. Og vegna krísunnar sem kórónaveiran hefur valdið hafa stjórnvöld bæði í Noregi og Danmörku kynnt sérstakar tilslakanir á þeim kröfum sem atvinnurekendur verða að uppfylla til að senda starfsfólk heim. Í Noregi munu stjórnvöld nú taka yfir launagreiðslur til starfsmanna stærri hluta af tímanum en áður og í Danmörku mun ríkið greiða 75 prósent af launum. Þar verða launþegarnir sjálfir líka að nota hluta af orlofsdögum sínum.
Þessar nýju reglur eru meðal aðgerða sem ríkisstjórnir Noregs og Danmerkur hafa boðað til að létta undir með atvinnulífinu vegna krísunnar sem kórónaveiran hefur valdið. Í Svíþjóð eru reglurnar ekki eins sveigjanlegar og kallar forstjóri SAS eftir breytingum svo hægt verði að komast hjá uppsögnum.
Norsk stjórnvöld bættu svo um betur seinnipartinn í dag. Þá tilkynnti Erna Solberg, forsætisráðherra, um stofnun sérstaks neyðarsjóðs vegna kórónaveirunnar. Framlag hins opinbera í sjóðinn nemur 100 milljörðum norskra króna sem jafngildir um 1,3 billjónum íslenskra króna.
Forstjóri SAS hefur þegar lýst áhuga sínum á að kanna möguleikan á að sækja um fé úr sjóðnum. Gera má ráð fyrir að starfsbróðir hans hjá Norwegian sé einnig að skoða umsókn því á blaðamannafundi sínum fyrir helgi sagði hann félagið þurfa á stuðningi að halda til að komast í gegnum núverandi krísu.