Samfélagsmiðlar

Afkomuspá Icelandair ekki lengur gild

Eftirspurn eftir ferðalögum er að dragast saman vegna útbreiðslu kórónaveirunnar samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Icelandair Group. Þar er fallið frá þeirri afkomuspá sem gefin var út í byrjun febrúar.

„Í ljósi þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til um allan heim vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar, er eftirspurn eftir ferðalögum á ákveðin svæði í heiminum nú þegar að dragast saman. Of snemmt er að segja til um möguleg áhrif þessarar þróunar á starfsemi Icelandair Group en þessi staða skapar aukna óvissu þegar kemur að áætlaðri rekstrarniðurstöðu félagsins fyrir árið 2020. Vegna þessarar óvissu er afkomuspá Icelandair Group fyrir árið 2020 sem félagið gaf út á markaðinn þann 6. febrúar sl. ekki lengur í gildi og telja stjórnendur félagsins ekki mögulegt að gefa út áreiðanlega afkomuspá á þessum tímapunkti.“ Þetta kemur fram í kauphallartilkynningu frá félaginu í dag.

Þar er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra samsteypunnar, að vegna ástandsins sé verið að greina hugsanlegar sviðsmyndir og móta aðgerðir til að draga úr þeim áhrifum sem þessi þróun kann að hafa á starfsemi félagsins. „Öll áhersla verður lögð á að lágmarka áhrif á viðskiptavini okkar en ef mótvægisaðgerðir koma til með að hafa áhrif á flugáætlun, munum við upplýsa um það um leið og slíkar ákvarðanir liggja fyrir. Ég legg áherslu á að öryggi og velferð farþega og starfsfólks okkar er ávallt í fyrirrúmi.“

Í tilkynningu segir að Icelandair hafi gripið til ýmissa ráðstafana og aukið viðbragðsgetu innan félagsins til að bregðast við vegna útbreiðslu veirunnar. „Félagið fylgist grannt með þróun mála, er í reglulegum samskiptum við sóttvarnarlækni og Landlæknisembættið og fylgir leiðbeiningum og verkferlum embættisins á hverjum tíma. Einnig er félagið sem fyrr í nánu samstarfi við Medaire, sem er alþjóðleg læknaþjónusta sem sérhæfir sig í lækningum og forvörnum um borð í flugvélum og veitir ráðgjöf í rauntíma þegar veikindi koma upp og ef grunur kæmi upp um smit um borð. Þá fá áhafnarmeðlimir viðamikla þjálfun sem meðal annars felur í sér viðbrögð við smitsjúkdómum. Þá hefur verið gripið til varúðarráðstafana með viðbótarbúnaði um borð í flugvélum Icelandair, svo sem sótthreinsiefni, andlitsgrímum og hönskum.“

 

.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …