Samfélagsmiðlar

Ekki stórar breytingar á Íslandsflugi easyJet næsta vetur

Breska lággjaldaflugfélagið easyJet hefur lengi verið umsvifamikið á Keflavíkurflugvelli og miðað við nýja vetraráætlun félagsins þá er útlit fyrir að svo verði áfram. Þó stefnir í að ekki verði flogið milli Íslands og Belfast næsta vetur.

Belfast City Hall

Frá Belfast. Miðað við nýja vetraráætlun easyJet þá munu þotur félagsins ekki fljúga hingað frá þeirri borg næsta vetur.

Nú eru átta ár liðin frá því að easyJet hóf áætlunarflug til Íslands. Til að byrja með flugu þotur félagsins hingað þrisvar í viku frá Luton við London en fljótlega bættust við fleiri flugleiðir. Þegar mest lét bauð easyJet upp á reglulegar ferðir frá sjö breskum flugvöllum og tveimur svissneskum.

Áherslan á Íslandsflug hjá stjórnendum breska félagsins minnkaði aftur á móti í fyrra og hittifyrra og til að mynda datt flugið frá Sviss upp fyrir.

Akkúrat núna liggur stór hluti af starfsemi easyJet niðri, líkt og annarra flugfélaga, vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. Engu að síður var sölufólk þess að opna fyrir bókanir á flugmiðum næsta vetrar. Og af framboðinu að dæma þá mun félagið halda áfram næsta vetur að fljúga hingað frá Bristol, Edinborg, Manchester og svo flugvöllunum Gatwick og Luton sem eru báðir í nágrenni við London.

Aftur á móti hefur easyJet ekki ennþá ekki sett í sölu áætlunarferðir hingað frá Belfast á Norður-Írlandi. Það stefnir þar með að íbúar borgarinnar geti ekki lengur flogið beint til Íslands úr heimabyggð en á tímabili flugu bæði easyJet og Air Iceland Connect til borgarinnar.

Samkvæmt athugun Túrista þá gerir easyJet ráð fyrir álíka ferðafjölda hingað næsta vetur ef frá er talin flugið frá Belfast. Þaðan flugu þotur félagsins tvisvar í viku til Keflavíkurflugvelli í vetur.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …