Allir íbúar á Íslandi átján ára og eldri fá stafrænt gjafabréf frá stjórnvöldum. Þetta kom fram á kynningarfundi á vegum ríkisstjórnarinnar þar sem farið var yfir aðgerðir sem grípa á til vegna þeirra efnahagslegu afleiðinga sem útbreiðsla kórónaveirunnar hefur valdið.
Gjafakortið á að hvetja til ferðalaga innanlands og er litið á þetta sem beinan stuðning við íslenska ferðaþjónustu að því segir í kynningarefni.
Kostnaður við útgáfu gjafabréfsins er um einn og hálfur milljarður króna. Nánari útfærsla á þessari aðgerð er í vinnslu í samvinnu við heildarsamtök ferðaþjónustufyrirtækja.