Samfélagsmiðlar

Nærri engar bókanir á utanlandsferðum

Forstjóri Úrval-Útsýn segir söluna hafa nánast stöðvast. Staðan er verri en fyrstu dagana eftir efnahagshrunið 2008.

Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval-Útsýn.

„Salan niður um níutíu prósent sem þýðir í raun algjört stopp. Skiptir engu hvort um er að ræða sólarlandaferðir, borgarferðir eða viðskiptaferðir. Það hafa komið inn færri bókanir síðustu tíu daga en fyrstu tíu dagana eftir Guð blessi Ísland ávarpið hans Geir H. Haarde. Það er algjört frost og engu líkara en það sé búið að skipa fólki að halda sig inni. Ég hef aldrei séð sölustopp og tíðar afbókanir eiga sér stað á sama tíma,” segir Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval-Útsýn.

Af samtölum hennar við erlend ferðaþjónustufyrirtæki er staðan slæm víða. „Ég tala við marga af okkar birgjum út í heimi. Þeir hafa heldur ekki upplifað þetta ástand. Staðan er því mjög alvarleg og alls ekki bara bundin við Ísland. Hjá okkur gerðist þetta kannski aðeins fyrr því við eru lítil þjóð en núna hefur ástandið úti versnað hratt síðustu daga.”

Þórunn bendir á að ferðaskrifstofur sem selja ferðir út í heim séu mikilvægur hluti af ferðaþjónustunni. „Við kaupum hluta af þeim sætum sem eru í boði hjá flugfélögum sem fljúga til og frá landinu sem gerir þeim kleift að halda úti tíðari ferðum. Þannig sér Icelandair um leiguflugið á okkar áfangastaði í sumar.”

Aðspurð um næstu skref og mögulegan niðurskurð þá segir Þórunn að ferðaþjónustan byggist á mannauði. „Ef fyrirtækin fara að segja upp fólki þá dettur út þekking og það mun taka langan tíma að þjálfa upp fagfólk á ný. Það skiptir því öllu máli að komast hjá umfangsmiklum hópuppsögnum. Við trúum því að þetta sé tímabundið ástand og því yrði það slæmt fyrir þjóðfélagið ef fyrirtækin þyrftu að segja upp fólki,” segir Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval-Útsýn.

Hún segist taka undir með Ásbergi Jónssyni, framkvæmdastjóra Nordic Visitor, sem segir það einna mikilvægast núna að Vinnumálastofnun fá heimild til að aðstoða fyrirtæki við að lækka starfshlutfall starfsfólks og þannig komast hjá uppsögnum.

„Það er ekki eftir neinu að bíða, drífið í þessu,” segir Þórunn og beinir orðum sínum að ráðamönnum. „Markaðssetning á landinu má bíða. Það er verkefni til lengri tíma. Nú þarf að grípa til aðgerða sem koma okkur til hjálpar einn, tveir og þrír.”

Hjá Úrval-Útsýn er nú horft til þess að fækka ferðum í apríl og maí. Þórunn telur jafnframt að draga þurfi meira saman ef ástandið batnar ekki. „Núna er bókunartímabilið fyrir sumarið og ef þetta heldur áfram þá verður að fækka ferðum á þeim tíma. Reynslan hefur kennt mér að sala á flugi til landsins endurspeglast í sölu á utanlandsferðum. Staðan er því mjög slæm á öllum stöðum.”

Nýtt efni

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …