Forstjóri Norwegian hefur síðustu daga ítrekað að það standi tæpt hjá félaginu. Lausafé er af skornum skammti og á blaðamannafundi í lok síðustu viku áréttaði hann að félagið þyrfti svar frá norskum ráðamönnum fljótt.
Í viðtali við Dagens Nærlingsliv í Noregi í gær útilokaði hann ekki að norska ríkið gæti orðið hluthafi í félaginu en þá yrði það að gerast án hefðbundinnar áreiðanleikakönnunar. Fyrir þess háttar væri einfaldlega enginn tími nú þegar útbreiðsla kórónaveirunnar er farin að valda meiriháttar krísu í flug- og ferðageiranum.
Nú í kvöld sagði norska viðskiptablaðið svo frá því að til stæði að veita Norwegian lánaábyrð upp á þrjá milljarða norskra króna frá norska ríkinu. Það jafngildir 37,5 milljörðum íslenskra króna.
SAS sem einnig er stórtækt í flugi í Noregi fær sömuleiðis lánaábyrgð frá norska ríkinu en þó uppá helmingi lægri upphæð.
Norwegian mun ekki fá nema tíu prósent upphæðinnar í fyrstu atrennu og þá aðeins ef almennir bankar eru til í að leggja tíu prósent mótframlag. Ef Norwegian nær svo að semja um lægri vexti og afborganir af núverandi skuldum fær félagið 15 milljarða í viðbót. Síðustu 19 milljarðarnir fást svo þegar staða Norwegian eru orðin stöðug.
Norska ríkið seldi tíu prósent hlut sinn í SAS fyrir nærri tveimur árum síðan en Svíar og Danir héldu eftir sínum hlutum og eiga í dag samtals 30 prósent í félaginu. Ríkisstjórnir Svíþjóðar og Danmerkur gáfu út á þriðjudag að þau myndu sameiginlega ábyrgjast lán til SAS upp á rúma fjörtíu milljarða króna.
Samtals hafa stjórnendur SAS því núna aðgang að lánaábyrgðum frá skandinavísku ríkissjóðunum upp á nærri fimmtíu milljarða króna.
Líkt og komið var inn á í viðtali Túrista við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair Group, þá bindur forsvarsfólk félagsins fyrst og fremst vonir við almennar aðgerðir en ekki sérstakar til handa Icelandair. Nú liggur aftur á móti fyrir að tveir af helstu keppinautum félagsins fá fyrirgreiðslur frá hinu opinbera í Skandinavíu.
Viltu styðja Túrista?
Nú þegar á virkilega á reynir þá stendur Túristi vaktina frá morgni til kvölds. Ef þú ert einn þeirra lesenda sem finnst gagn í skrifum Túrista þá væri ómetanlegt ef þú myndir leggja útgáfunni lið. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.