Landamærum nokkurra landa hefur nú þegar verið lokað og stjórnvöld víða leggjast gegn ferðalögum út í heim, þar á meðal þau íslensku. Af þeim sökum hefur eftirspurn eftir flugmiðum dregist alveg saman líkt og fram hefur komið í máli forsvarsfólks erlendra flugfélaga yfir helgina.
Seint í gærkvöld sendi Icelandair frá sér tilkynningu og þar segir að yfirgripsmiklar ferðatakmarkanir, vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar, hafi haft veruleg áhrif á eftirspurn og neikvæð áhrif á bókunarstöðu félagsins. Til marks um það hafi dregið úr flugframboði um þrjátíu prósent síðustu daga og frekari samdráttur líklegur á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi. „[S]taðan getur breyst hratt“, segir í tilkynningunni.
Það ríkir jafnframt óvissa um hvernig flugáætlun Icelandair verður í sumar en eins og staðan er núna gæti flugframboð félagagsins minnkað um fjórðung að minnsta kosti. „Félagið mun þó leggja áherslu á að viðhalda þeim sveigjanleika sem þarf til að geta brugðist hratt við eftir því hvernig eftirspurn þróast.“
Í tilkynningunni segir jafnframt að fjárhagsleg áhrif vegna útbreiðslu kórónaveirunnar á starfsemi Icelandair eru enn óviss. „Lausafjárstaða félagsins nam rúmum 39 milljörðum króna (301,6 milljónum dala) í árslok 2019 og er á svipuðum stað í dag. Ljóst að útbreiðsla COVID-19 veirunnar muni hafa neikvæð áhrif á sjóðstreymi félagsins en unnið er að því að lágmarka þau áhrif, meðal annars með því að draga úr flugframboði og vinna með stéttarfélögum til að lækka launakostnað verulega.“