Samfélagsmiðlar

Starfsmenn Keflavíkurflugvallar fá viðurkenningu fyrir þjónustu

Þegar horft er til flugstöðva með fimm til fimmtán milljón farþega á ári þá er Keflavíkurflugvöllur einn af þeim sjö í Evrópu þar sem farþegum þykir þjónustan best.

kef taska 860

Keflavíkurflugvöllur er á meðal bestu flugvalla í Evrópu í sínum stærðarflokki þegar horft er til þjónustu. Þetta sýna niðurstöður alþjóðlegrar þjónustukönnunar sem framkvæmd er á helstu flugvöllum heims á vegum Alþjóðasamtaka flugvalla (ACI) og Isavia greinir frá í tilkynningu.

„Keflavíkurflugvöllur hefur verið á meðal þátttakenda í könnunum ACI frá árinu 2004 og hefur alla tíð verið ofarlega á evrópska listanum, sem telur yfir 100 flugvelli vítt og breitt um álfuna. Nú er ljóst að Keflavíkurflugvöllur er einn af þeim átta sem fá hæsta meðaleinkunn í könnuninni og hlýtur því sérstaka viðurkenningu ACI fyrir þjónustugæði. Aðrir sem hljóta viðurkenningu í sama flokki eru flugvellirnir í Björgvin í Noregi, Izmir í Tyrklandi, Sochi í Rússlandi, Luqa á Möltu, Newcastle á Englandi og Porto flugvöllur í Portúgal,“ segir í tilkynningu Isavia.

Þar kemur jafnframt fram að þjónustukönnun ACI, Airport Service Quality programme (ASQ), sé ein virtasta og marktækasta mælingin sem gerð er á þjónustugæðum flugvalla. „Við framkvæmd hennar eru farþegar á flugvöllum um allan heim spurðir staðlaðra spurninga um 34 þjónustuþætti. Því er um samræmdan og yfirgripsmikinn samanburð að ræða, bæði á milli flugvalla og á milli ára. Könnunin er framkvæmd á 356 flugvöllum um allan heim, þar af 115 í Evrópu. Keflavíkurflugvöllur er á meðal 37 flugvalla í sínum flokki, flokki evrópskra flugvalla með 5-15 milljónir árlegra farþega.“

Nýtt efni

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …

Í marsmánuði fór fjöldi erlendra ferðamanna í Japan í fyrsta skipti yfir 3 milljónir, samkvæmt tölum sem birtar voru í síðustu viku. Um 2,7 milljónir komu í febrúar. Auðvitað nýtur japönsk ferðaþjónusta nú uppsafnaðrar löngunar erlendra ferðamanna á að heimsækja loks Japan eftir langvarandi lokun og ferðahindranir í tengslum við Covid-19 en það er ekki …

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands var heiðraður á ársfundi Meet in Reykjavik í gær. Hann leiddi til sigurs umsókn Íslands um að fá ráðstefnuna „International Geoscience and Remote Sensing Symposium (IGARSS)“ til Reykjavíkur í júlí 2027. Gert er ráð fyrir að 2.500 erlendir vísindamenn og fagfólk á sviði fjarkönnunar frá öllum heimshornum sæki ráðstefnuna …

United Airlines tilkynntu í gær um betri afkomu en vænst var á öðrum ársfjórðungi. Þetta kemur í framhaldi af því að tapið á fyrsta fjórðungi var minna en óttast hafði verið. Megin ástæða þess að vel gengur er einfaldlega mikill áhugi á ferðalögum. Hlutabréf í United hækkuðu strax í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var …