Lufthansa Group rekur ekki aðeins samnefnt þýskt flugfélag heldur líka Eurowings, SWISS, Austrian, Brussels airlines og nokkur minni félög. Engin önnur flugfélagasamsteypa í Evrópu er eins umsvifamikil. Gengi hlutabréfa í Lufthansa Group, eins og í öðrum flugfélögum, hefur þó fallið hratt síðustu vikur í takt við að flugsamgöngur hafa nærri því lagst af tímabundið.
Þýski milljarðamæringurinn Heinz Hermann Thiele sér aftur á móti tækifæri í þessari verðlækkun og nú í mars hefur hann í nokkrum skrefum keypt samtals tíu prósent hlut í Lufthansa samkvæmt frétt Checkin.dk. Þar með er Thiele orðin stærsti hluthafinn í þýsku samsteypunni en hann hefur efnast gríðarlega í gegnum fyrirtæki sitt Knorr-Bremse sem framleiðir meðal annars bremsubúnað fyrir járnbrautalestar. Thiele er lýst sem mjög virkum fjárfesti sem hiki ekki við að láta skoðanir sínar í ljós.
Virði þessa tíu prósent hlutar Thiele í Lufthansa er í dag um 73 milljarðar króna en til samanburðar þá er heildarvirði Icelandair Group rétt um tuttugu milljarðar í dag. Í hlutahafahópi íslenska félagsins eru stærstu eigendurnir aftur á móti mismunandi sjóðir. Sá einstaklingur sem á flest bréf í Icelandair samteypunni er Högni Pétur Sigurðsson. Í eigin nafni og í gegnum eignarhaldsfélagið Nautica fer hann með 2,15 prósent hlut í félaginu.
Þess ber að geta að persónulegur hlutur Högna Péturs er ekki merktur honum á lista Icelandair Group yfir tuttugu stærstu hlutahafa félagsins. Í staðinn stendur aðeins „Einstaklingur“ við eign upp á 70 milljónir hluta en áður hefur komið fram að þar fari fyrrnefndur fjárfestir. Þessi hlutur hefur stækkað um fjórðung frá því í byrjun vetrar.
Viltu styðja Túrista?
Nú þegar virkilega á reynir þá stendur Túristi vaktina frá morgni til kvölds. Ef þú ert einn þeirra lesenda sem finnst gagn í skrifum Túrista þá væri ómetanlegt ef þú myndir leggja útgáfunni lið. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.