Samfélagsmiðlar

Viðbygging flugstöðvarinnar verði sveigjanleg

Þegar stækkun flugstöðvarinnar við Akureyrarflugvöll er yfirstaðin þá verður samhliða hægt að koma farþegum um borð í eina þotu og hefðbundna farþegaflugvél á einum klukkutíma.

Nauðsynlegt er að byggja við flugstöðina á Akureyrarflugvelli til að geta veitt viðunandi þjónustu samtímis fyrir millilanda- og innanlandsflug. Þetta eru niðurstöður skýrslu aðgerðahóps sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að meta þörf fyrir aðstöðu og þjónustu í flugstöð á Akureyrarflugvelli og sagt er frá á vef ráðuneytisins.

Þar segir að vinnuhópurinn telji núverandi flugstöð vera of litla og aðstöðu ófullnægjandi til að sinna hlutverki sínu til framtíðar. Lagt er til að ráðist verði í hönnun 1.000 m2 viðbyggingar svo hægt verði að afgreiða allt að 220 sæta millilandavél á innan við klukkutíma samhliða 70 sæta innanlandsvél.

Í skýrslunni er gert ráð viðbyggingu við núverandi flugstöð og að hönnun hennar verði sveigjanleg til að hægt verði að stækka bygginguna eða breyta nýtingu einstakra svæða. Kostnaður er áætlaður um 900 m.kr. og lagt er til að þegar í stað verði ráðist í hönnun, færslu olíutanka og jarðvinnu þannig að byggingarframkvæmdir geti hafist strax að hönnun lokinni. Áætlað er að við framkvæmdir við viðbygginguna verði til um 50 ársverk.

„Það er ánægjulegt að geta stigið mikilvægt og myndarlegt skref að frekari uppbyggingu á Akureyrarflugvelli sem gátt inn til landsins. Hafist verður handa við hönnun og síðar stækkun á flugstöðinni á Akureyri innan skamms. Tími fjárfestinga er núna og fyrir Norður- og Austurland skiptir öllu máli að vera vel í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum þegar Covid-tímabilið er afstaðið,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í tilkynningu.

Sigurður Ingi segir að á síðustu árum hafi verið unnið að því að efla Akureyrarflugvöll og að lenging flugbrautarinnar hafi verið fyrsta skrefið. Árið 2018 hafi síðan verið tryggt fjármagn fyrir aðflugsbúnað, ILS, sem þegar hafi sannað gildi sitt.

„Samhliða stækkun á flugstöðinni verður flughlaðið á Akureyrarflugvelli stækkað til að koma á móts við aukin umsvif og öryggi vallarins. Áætlað er að við báðar þessar framkvæmdirnar verði til um 90 ársverk, í hönnunar- og verktakavinnu,“ segir ráðherra.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra undirrituðu viljayfirlýsingu 18. desember sl. um frekari uppbyggingu á Akureyrarflugvelli sem gátt inn til landsins í þágu svæðisins og íslenskrar ferðaþjónustu. Í framhaldi af yfirlýsingunni skipaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra aðgerðahóp sem leggja skildi mat á þörf fyrir aðstöðu og þjónustu í flugstöð á Akureyrarflugvelli. Í hópnum sátu fulltrúar ráðuneytanna tveggja, Akureyrarbæjar, Eyþings, ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og Isavia.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …