Icelandair Group mun í þessum mánuði grípa til yfirgripsmikilla aðgerða sem fela í sér uppsagnir og breytingar á skipulagi félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. „Á sama tíma verður lögð áhersla á að halda uppi grunnstarfsemi á öllum sviðum til þess að tryggja þann sveigjanleika sem þarf til að félagið geti brugðist hratt við um leið og markaðir opnast á ný. Umfang aðgerðanna verður kynnt nánar fyrir mánaðamót.“
Fjöldi stöðugilda hjá Icelandair Group var að meðaltali 4715 í fyrra en þar af voru 659 hjá hótelunum samsteypunnar en endanlega var gengið frá sölu á 75 prósent hlut í Icelandair hotels í síðasta mánuði.
Í tilkynningu segir að mjög mikil óvissa ríki varðandi flug og ferðaþjónustu næstu misserin, hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og hvenær eftirspurn muni taka við sér á ný. Til að bregðast við áframhaldandi óvissu, búa stjórnendur Icelandair Group félagið undir órætt tímabil þar sem starfsemi þess verður í lágmarki en sem stendur eru einungis örfá flug í viku í áætlun félagsins.
„Við þurfum að aðlaga starfsemi Icelandair Group þeim veruleika sem blasir við. Það er gríðarleg óvissa framundan og því miður eru uppsagnir starfsfólks óumflýjanlegar til að komast í gegnum þetta krefjandi tímabil. Við leggjum áherslu á að tryggja grunnstarfsemi félagsins til að geta komist hratt af stað aftur og vonumst auðvitað til að geta boðið stærstum hluta þeirra starfsmanna sem um ræðir vinnu aftur um leið og aðstæður batna. Einn af helstu styrkleikum félagsins er sveigjanleiki til að bregðast hratt við breytingum á markaði og við ætlum okkur að vera tilbúin til að sækja fram af miklum krafti þegar tækifærin gefast á ný,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair samsteypunnar, í tilkynningu.