Það var um miðjan mars sem Svíar, Íslendingar og fjöldi annarra ríkja gáfu út þau tilmæli að íbúar landanna ferðuðust ekki til útlanda að óþörfu fyrr en eftir páska. Á sama tíma voru þeir þegnar sem staddir voru í útlöndum beðnir um að snúa heim.
Rétt í þessu framlengdi sænska utanríkisráðuneytið svo gildistíma þessara tilmæla um tvo mánuði eða til 15. júní. Haft er eftir Ann Linde, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í frétt Svenska dagbladet að nú sé ekki rétti tíminn til að ferðast, hvorki innanlands né utan.
Nú er að sjá hvort stjórnvöld hér á landi framlengi einnig núgildandi ferðaviðvörun. Ljóst er að það gæti orðið til þess að auka enn frekar hina miklu pressu sem ferðageirinn er undir dagana um endurgreiðslur á ferðum sem fella hefur þurft niður vegna lokaðra landamæra eða ferðaviðvaranna stjórnvalda.