Samfélagsmiðlar

Bróðurpartur Bandaríkjamanna ætlar að bíða með utanlandsferðir

Þó margir vestanhafs séu farnir að huga að ferðalögum í sumar þá gefa niðurstöður nýrrar könnunar sterklega til greina að margir ætli sér að halda sig innanlands.

Frá Manhattan í New York.

Rétt um helmingur íbúa Bandaríkjanna telur orðið óhætt að fara í lengri ferðalög í eigin bíl. Fjórðungur fólks ætlar þó að halda kyrru fyrir heima hjá sér þangað til að hættan á því að smitast af Covid-19 er yfirstaðin. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjustu niðurstöðum vikulegrar könnunar Destination Analysts sem byggir á um tólf hundrað svörum.

Stór hluti áætlunarflugs frá Bandaríkjunum til Íslands er frá flugvöllum í norðausturhluta Bandaríkjanna, t.d. New York og Boston, og á þessu svæði segjast áttatíu prósent svarenda ætla að forðast ferðalög út í heim á næstunni. Ungt fólk er þó líklegra en þeir eldri til að halda út í heim.

Þrátt fyrir allt eru margir vestanhafs farnir að hugsa sér til hreyfings og skipuleggja einhvers konar ferðalög á næstu misserum. Þannig segjast 64 prósent þátttakenda í könnuninni vera með eina eða fleiri reisur á prjónunum. Bróðurparturinn (84%) snýr þó að ferðalögum innan Bandaríkjanna.

Þriðjungur ferðamanna hér á landi í fyrra kom frá Bandaríkjunum en síðastliðið sumar flugu þrjú stærstu flugfélögin þar í landi daglega til Keflavíkurflugvallar. Þau hafa öll fellt niður allar brottfarir nú í sumar.

Icelandair hefur á sama tíma hætt sölu á farmiðum til tveggja bandarískra borga líkt og Túristi greindi frá í gær.

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …