Michelle Roosevelt Edwards og viðskiptafélagar hennar hjá hinu bandaríska USAerospace Partners vinna nú að því að koma WOW air í loftið á ný. Þannig var heimasíða félagsins nýverið uppfærð en ennþá er þó margt á huldu varðandi áform félagsins.
Samhliða endurreisn WOW air vilja þau hjá USAerospace Partners leggja ítölskum stjórnvöldum lið við að snúa rekstri Alitalia við. Þennan áhuga sinn á ítalska flugfélaginu létu þau í ljós nú í lok vetrar en þá varð ekkert af viðræðum.
Áhugi eigenda WOW á ítalska félaginu er þó ennþá til staðar samkvæmt frétt Reuters. Þar segir að USAerospace Partners hafi fyrir helgi ítrekað vilja sinn á að koma Alitalia í loftið á ný í samstarfi við ítölsk stjórnvöld og aðra fjárfesta.
Stjórnvöld í Róm vinna þó áfram að því að bjarga Alitalia frá gjaldþroti en félagið hefur lengi verið í miklu basli.