Samfélagsmiðlar

Gera má ráð fyrir færri flugmönnum

Icelandair og flugmenn félagsins hafa gert nýjan fimm ára kjarasamning. Þar er kveðið á um aukið vinnuframlag flugmanna. Því má vera ljóst að miðað við óbreytt framboð þá þurfi flugfélagið ekki eins marga í vinnu.

MAX þota Icelandair í Berlín.

Um síðustu helgi var Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair samsteypunnar, ekki sáttur við gang mála í kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) líkt og kom fram í bréfi hans til starfsfólks á laugardagskvöld. Bogi greip svo til þess ráðs í byrjun vikunnar að senda flugmönnum drög að nýjum samningi eftir að stjórn FÍA neitaði að bera tilboðið undir félagsmenn. Formaður félags flugmanna svaraði þeirri sendingu með öðru bréfi á sitt fólk.

Deilan var því allt í hnút en nú hefur tekist samkomulag til næstu fimm ára milli Icelandair og FÍA. Nýr kjarasamningur mun vera er í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika verulega samkvæmt því sem segir í tilkynningu.

Gera má ráð fyrir að með aukinni vinnuskyldu verði ekki þörf fyrir eins marga flugmenn og áður ef miðað er við umsvif félagsins fyrir kórónaveirukrísuna. Í tilkynningu Icelandair segir þó lítið um efni samningsins en þó er haft eftir forstjóranum að samningurinn gefi félaginu aukinn sveigjanleika til þróunar á leiðakerfi Icelandair.

Í því samhengi má horfa til þess að Icelandair hætti flugi til San Francisco í fyrra á sama tíma og evrópsk flugfélög fjölguðu ferðunum þangað. Einnig fyllti félagið ekki skarð WOW air í flugi til Kanaríeyja með sama hætti og boðað var. Í ársbyrjun 2018 voru einnig uppi áform um að hefja flug til borga í austurhluta Evrópu og jafnvel til Indlands líkt og fram kom í máli þáverandi forstjóra. Nú er að bíða og sjá hvort rykið verði dustað af þessum áætlunum en fyrst þarf flugumferð í heiminum auðvitað að komast í lag.

Nýtt efni

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …