Hjá hinu upprunalega WOW air stærðu stjórnendur sig af háum hliðartekjum á hvern farþega. Var þá horft til þess hve margir borguðu aukalega fyrir farangur og val á sætum um borð. Eins komust farþegar ekki hjá því að greiða bókunargjald upp á 999 krónur. Nýir eigendur vörumerkis WOW hafa ítrekað að þessi háttur verði ekki hafður á þegar WOW hefur sig til flugs á ný.
Á nýuppfærði heimasíðu félagsins er þessi stefna útskýrð nánar. Þar segir að í heimi WOW air (WOW world) þurfi farþegar ekki að hafa áhyggjur af yfirvigt eða farangurstakmörkunum. Í þeim heimi geti fólk líka tekið frá þau sæti um borð sem það vill án aukgreiðslu og matreiðslumeistarinn Roger Wiles mun svo tryggja góða næringu í fluginu.
Þetta eru svokölluð heiðarleg fargjöld að hætti WOW air (Honest fare). Þeim fylgir líka frítt netsamband í háloftunum og afþreying. Frasarnir WOW World og Honest Fares eru merktir sem skráð vörumerki eða ™ í texta heimasíðunnar.
Engar upplýsingar eru á vefsíðu WOW um hvert flugfélagið mun fljúga en ráðnir hafa verið til starfa framkvæmdastjórar á Ítalíu og Rússlandi. Auk þess er Magnús Magnússon nýr yfirmaður vöruflutningasvið félagsins.
Einnig ætlar félagið sér að hasla sér völl í Afríku samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðunni.