Samfélagsmiðlar

Lýsti yfir vanhæfi í stjórn vegna umræðu um samruna við Kynnisferðir

Forstjóri Isavia situr í stjórn Eldeyjar en til stendur að sameina þann sjóð Kynnisferðum. Isavia og Kynnisferðir deila á sama tíma fyrir dómstólum.

Fjárfestingasjóðurinn Eldey hefur síðustu ár keypt hluti í fyrirtækjum sem sérhæfa sig í afþreyingu fyrir ferðafólk. Nú í byrjun mánaðar var svo tilkynnt að unnið væri að því að sameina fjárfestingasjóðinn Eldey og Kynnisferðir, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins.

Í stjórn Eldeyjar situr Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, en Kynnisferðir stefndu Isavia í fyrra vegna meintra vanefnda í kjölfar útboðs á aðstöðu fyrir sætaferðir frá Leifsstöð til höfuðborgarinnar.

Sveinbjörn segist, í svari til Túrista, strax hafa lýst yfir vanhæfi varðandi alla umfjöllun um Kynnisferðir í stjórn Eldeyjar og því ekki hafa komið að því verkefni sem slíku eða ákvarðanatökum. „Ég mun að sjálfsögðu ekki taka sæti í stjórn sameinaðs félags ef af sameiningu verður,“ segir Sveinbjörn.

Sveinbjörn hefur setið í stjórn Eldeyjar frá stofnun félagsins árið 2015 en hann situr ekki í fleiri stjórnum utan Isavia í dag.

Í fyrrnefndri deilu Kynnisferða og Isavia fara stjórnendur þess fyrrnefnda fram á að söluþóknun Isavia af seldum miðum í Flugrútuna verði lækkuð um helming. Hún hefur verið 41,2 prósent frá því í mars árið 2018 og þá í takt við tilboð Kynnisferða í fyrrnefndu útboði.

Fyrsta árið greiddu Kynnisferðir 413 milljónir króna í söluþóknun til Isavia en árið áður nam upphæðin rétt um 80 milljónum króna samkvæmt því sem fram kemur í málskjölum.

Líkt og Túristi greindi frá í fyrradag þá nam tap Eldeyjar rúmum milljarði í fyrra. Árið á undan var tapið 355 milljónir.

Á hlutahafafundi á þriðjudag var kallað eftir viðbótar hlutafé í sjóðinn upp á hálfan milljarð en íslenskir lífeyrissjóðir fara með 70 prósent hlut í Eldey.

Nýtt efni

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …