Ríkisaðstoðin kemur Norwegian bara í gegnum árið

Forsvarsfólk Norwegian kynnir nú nýja útgáfu af flugfélaginu fyrir bæði nýjum og gömlum hluthöfum í tengslum við hlutafjárútboð. Stjórnendur Icelandair gera ráð fyrir hver tekjulaus mánuður kosti félagið um einn og hálfan milljarð króna.

Mynd: Norwegian

Handahafar skuldabréfa í Norwegian, eigendur flugflotans og eldri hluthafar sættust allir á þá afarkosti sem þeim voru boðnir til að koma félaginu fyrir vind nú í vikubyrjun. Tveir fyrrnefndu hóparnir eiga nú orðið félagið að langmestu leyti en þeir þurfa líka að setja inn meira hlutafé enda útlit fyrir að Norwegian muni brenna háum fjárhæðum næstu mánuði nú þegar áætlunarflug liggur nærri algjörlega niðri.

Ætlunin er því að safna að 300 til 400 milljónum norskra króna í nýtt hlutafé en það jafngildir 4,3 til 5,7 milljörðum íslenskra króna. Þá fær félagið jafnframt lánaábyrgð frá norska ríkinu upp á 2,7 milljarðum norskra króna eða tæpa 39 milljarða kr. Þessi stuðningur frá norska ríkinu dugir þó aðeins til að koma félaginu í gegnum þetta ár samkvæmt frétt Dagens Næringsliv. Þar segir að jafnframt að ef heimsfaraldurinn heldur áfram að takmarka flugsamgöngur á næsta ári á muni það kosta félagið um 300 til 500 milljónir norskar eða allt að rúma 7 milljarða á mánuði að komast í gegnum hvern einasta mánuð á fyrsta fjórungi næsta árs.

Til samanburðar gerir svokölluð grunnsviðsmynd forsvarsfólks Icelandair ráð fyrir að hver tekjulaus mánuður kosti félagið um einn og hálfan milljarð króna samkvæmt því sem Fréttablaðið greinir frá í dag. Heimildir blaðsins herma að þær áætlanir sem nú eru kynntar fyrir íslenskum fjárfestum geri ráð fyrir að starfsemi félagsins verði lítil sem engin í tólf mánuði.

Icelandair ætlar að sækja rúmlega 29 milljarða króna í almennu hlutafjárútboði í júní. Auk þess mun verið að kanna möguleika á því að breyta skuldum í eigið fé en líkt og Túristi hefur áður bent á þá er situr Landsbankinn uppi með veð í tíu Boeing 757 þotum fyrir tíu milljarða króna láni til flugfélagsins sem veitt var í mars í fyrra.

Af yfirlýsingum forstjóra bandarískra flugfélaga eins og American Airlines og United þá eru miklar líkur á að félögin leggi nú endanlega eldri flugvélum eins og Boeing 757 og 767. Aftur á móti gætu þessar þotur nýst Icelandair í viðspyrnunni þegar að henni kemur að því gefnu að olíuverð haldist áfram lágt. Því þótt þær séu eyðslufrekar þá er eignarhaldskostnaðurinn vegna þeirra sáralítill. Öfugt við Boeing MAX þotur félagsins en Icelandair hefur selt og endurleigt sjö af þeim níu þotum sem framleiddar hafa verið fyrir félagið.