Samfélagsmiðlar

Bandarísku ferðafólki ólíklega hleypt inn

Það liggur ekki ennþá fyrir hvernig staðið verði að opnun ytri landamæra Evrópu og hvort Ísland fái undanþágu til að opna meira en önnur ríki.

kaupmannahofn ferdamadur Morten Jerichau

Ferðalangur í Kaupmannahöfn.

Nú í sumar stefnir í að einu túristarnir í Evrópu verði nær eingöngu íbúar álfunnar sjálfrar. Jafnvel þó til standi að opna ytri landamæri Evrópu og Schengen svæðisins að einhverju leyti í byrjun júlí.

Sú tilslökun verður nefnilega þeim takmörkunum háð að aðeins þegnar ríkja þar sem útbreiðsla Covid-19 hefur verið undir ákveðnum mörkum verður hleypt inn í Evrópu. Í dag miðast þau við 16 ný smit á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikur samkvæmt heimildum New York Times innan Evrópusambandsins.

Gangi þetta eftir verða ferðamenn frá Bandaríkjunum væntanlega útilokaðir. Íbúar Rússlands og Brasilíu uppfylla þá heldur ekki skilyrðin sem ráðamenn í ESB leggja nú drög að. Aftur á móti gætu Kínverjar á ný haldið til Evrópu í frí.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, dóms­málaráðherra, gerði fyrr í þessum mánuði ráðamönnum annarra Schengen-ríkj­a grein fyr­ir áformum Íslands um opnun ytri landamæra þann 1. júlí og vísaði þar til sérstöðu Íslands. Ennþá er ekki komin niðurstaða varðandi þá undanþágu.

Flugáætlun Icelandair í júlí byggir að töluverðu leyti á því að hún fáist. Þannig gerir félagið ráð fyrir ríflega þrjátíu ferðum í viku til Bandaríkjanna um miðjan júlí.

Bandaríkjamenn hafa lengi verið fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi. Vægi þeirra síðastliðið sumar var til að mynda 28 prósent samkvæmt talningu Ferðamálastofu.

Nýtt efni

Frakkar fjölmenna til Íslands allt árið um kring og í fyrra flugu frá Keflavíkurflugvelli 99 þúsund farþegar með franskt vegabréf. Það jafngildir því að fimm af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi séu franskir enda eru flugsamgöngur milli Íslands og Parísar tíðar og stefnir í að þeir verði óvenju miklar næsta vetur. Það eru því …

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …

Xiaomi er hraðvaxta hátæknifyrirtæki í Beijing í Kína, stofnað fyrir 14 árum af frumkvöðlinum og milljarðamæringnum Lei Jun og félögum hans. Á síðasta ári var fyrirtækið í þriðja sæti á lista þeirra sem seldu flesta farsímana - næst á eftir Samsung og Apple. Xiaomi framleiðir og selur margskonar annan háþróaðan tæknibúnað og neytendavörur en samdráttur …

Fyrir rúmu ári var greint frá því að þýska Lufthansa-samsteypan hefði áhuga á að kaupa 40 prósenta hlut í ítalska þjóðarflugfélaginu ITA en niðurstaða hefur ekki enn fengist. Í janúar hóf Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins rannsókn á samkeppnisáhrifum þess að Þjóðverjarnir eignuðust stóran hlut í ítalska flugfélaginu sem lengi hefur verið stjórnvöldum á Ítalíu höfuðverkur.  Nú í …