Borgirnar Barcelona á Spáni og Manchester á Englandi duttu út af sumaráætlun Icelandair fyrir hálfum mánuði síðan. Á sama tíma tók félagið úr sölu ferðir til Philadelphia og Portland í Bandaríkjunum, kanadísku borganna Montreal, Edmonton og Vancouver auk Billund í Danmörku, Bergen í Noregi og Gatwick flugvallar við London.
Nú er liggur fyrir að ekkert verður af ferðum til þessara átta flugvalla í sumar. Einnig falla niður ferðir til Anchorage í Alaska. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í svari við fyrirspurn Túrista.
Hún undirstrikar að þessi breyting á aðeins við um núverandi sumaráætlun en ekki komandi vetraráætlun. En Icelandair hefur til að mynda flogið til Gatwick allt árið um kring og stóran hluta ársins til Portland, Vancouver, Edmonton og Bergen.
Með þessum breytingum þá falla niður allar flugsamgöngur frá Íslandi til flestra þessara borga því Icelandair var eitt um ferðirnar til þeirra allra ef London og Manchester eru frátaldar.
Það leit að vísu út fyrir að félagið fengi samkeppni í Íslandsflugi frá Philadelphia í sumar en American Airlines hætti við flug sitt hingað frá borginni í sumar. Og ekkert verður heldur að ferðum Air Canada hingað frá Montreal og Toronto í ár.