Það hefur verið í bígerð að opna ytri landamæri Evrópusambandsins og Schengen svæðisins þann fyrsta júlí. Sá dagur rennur upp á morgun en það var fyrst nú í dag sem Evrópusambandið birti lista yfir þau fimmtán lönd sem nú fá aðgang að aðildarlöndum Schengen um mánaðamótin.
Líkt og áður hafði komið fram eru Bandaríkjamenn ekki á lista enda er gerð krafa um að tíðni nýrra Covid-smita, í viðkomandi landi, sé álíka eða undir meðaltali Evrópusambandsríkjanna.
Löndin fimmtán sem um ræðir eru eftirtalin:
- Alsír
- Ástralía
- Kanada
- Georgía
- Japan
- Svartfjallaland
- Marokkó
- Nýja-Sjáland
- Rúanda
- Serbía
- Suður-Kórea
- Taíland
- Túnís
- Uruguay
- Kína
Ferðamenn frá þessum löndum ættu þá samkvæmt öllu að geta farið að ferðast hingað til lands. Þess ber þó að geta að listinn verður uppfærður á tveggja vikna fresti til að byrja með.