Að mati bandarískra flugmálayfirvalda er tímabært að hefja flugprófanir á Boeing MAX en allar þotur af þessari gerð voru kyrrsettar í mars í fyrra í kjölfar tveggja flugslysa þar sem 346 manns misstu lífið.
Samkvæmt frétt Reuters er búist við að þessar prófanir hefjist nú þegar í dag en ekki liggur fyrir hvenær þoturnar yrðu möguega teknar notkun á ný. Alls höfðu um fjögur hundruð MAX þotur verið afhentar þegar kyrrsetning hófst.
Þar af fóru sex til Icelandair en samtals pantaði félagið sextán MAX þotur. Stjórnendur Icelandair eiga nú í viðræðum við Boeing um þær þotur sem eftir á að afhenda og eins frekari skaðabætur vegna kyrrsetningarinnar.
Icelandair var þó ekki eini félagið sem nýtti Boeing MAX þotur í Íslandsflug því það gerðu líka Air Canada og Norwegian.