Allt frá falli WOW air hefur Norwegian verið stórtækast í farþegaflugi milli Íslands og Spánar. Síðastliðinn vetur hélt félagið þannig úti áætlunarflugi hingað frá Tenerife, Las Palmas, Alicante, Barcelona og Madríd.
Eftir fjárhagslega endurskipulagningu Norwegian nú í vor er óljóst hvað verður af útgerð félagsins á Spáni. Aftur á móti ætlar félagið að taka upp þráðinn í flugi milli Keflavíkurflugvallar og Óslóar fimmtudaginn 2. júlí. Í framhaldinu verður flogið tvisvar í viku út næsta mánuð og í ágúst verða ferðirnar þrjár í viku.
Í tilkynningu sem Norwegian sendi frá sér í morgun segir að vegna mikillar eftirspurnar þá ætli félagið að hefja flug á 76 flugleiðum nú í júlí og Íslandsflugið frá norsku höfuðborginni er ein þeirra.
Þess má geta að ennþá er hægt að bóka flug með Norwegian frá Íslandi til Barcelona og Alicante í haust. Í ljósi þess að félagið hefur þó gefið út að starfsstöðvar félagsins á Spáni verði lagðar í dvala og starfsfólk ekki endurráðið þá leikur vafi á að þessi flug verði á dagskrá. Það hafa þó ekki fengist skýr svör um hvað verður frá félaginu sjálfu.