Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að framlengja þær ferðatakmarkanir sem gilda innan Evrópusambandsins og Schengen svæðisins. Á sama tíma verða takmarkanir gagnvart íbúum fjórtán ríkja afnumdar frá og með 15. júlí í samræmi við ákvörðun aðildarríkja ESB. Þetta kemur fram í frétt á vef dómsmálaráðuneytisins.
Ríkin fjórtán eru eftirfarandi: Alsír, Ástralía, Kanada, Georgía, Japan, Marókkó, Nýja-Sjáland, Rúanda, Serbía, Suður-Kórea, Svartfjallaland, Túnis, Tæland og Úrugvæ.
Listi þessi verður endurskoðaður reglulega samkvæmt því sem segir í frétt ráðuneytisins.
Þar kemur jafnframt fram að engar aðrar breytingar verði heldur á undanþágum frá takmörkunum vegna brýnna erindagjörða. Áfram verður t.a.m. námsmönnum frá ríkjum utan Schengen sem hyggjast stunda nám og sérfræðingum í vinnutengdum erindum heimilt að koma til landsins.