Í lok mars sagði Isavia upp 101 starfsmanni og í dag var 133 starfsmönnum í viðbót sagt upp störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að allt frá því að Covid-19 faraldurinn hófst þá hafi móðurfélag Isavia gripið til umfangsmikilla aðgerða sem snerta öll svið félagsins vegna þess samdráttar sem orðið hefur í flugi til og frá landinu. Í heildina hefur stöðugildum hjá móðurfélagi Isavia fækkað um fjórutíu prósent.
„Eftir ágætis gang í sumar, þar sem fjölgun ferðamanna um Keflavíkurflugvöll var nokkuð stöðug, þá varð alger viðsnúningur í kjölfar ákvörðunar um tvöfalda skimun með sóttkví á milli, “ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningu.
„Flugfélög hafa dregið verulega úr framboði og eins og staðan er í dag þá er útlit fyrir að það breytist ekki í náinni framtíð. Forsendur okkar frá í sumar eru því brostnar og í dag gerum við ráð fyrir að umsvifin í vetur verði mjög lítil á Keflavíkurflugvelli. Það er því útlit fyrir að verkefni verði af skornum skammti fyrir hóp starfsmanna okkar næstu mánuðina,“ bætir Sveinbjörn við.
Hann segir algjöra óvissu ríkja um framvindu næstu mánuði og Isavia muni endurskoða stöðuna reglulega. Ef ástandið breytist til batnaðar geti Isavia brugðist hratt við þeirri breyttu stöðu.
„Við óskum öllu því fólki sem nú er að hverfa frá Isavia velfarnaðar, þökkum því fyrir þeirra störf og vonumst til að leiðir okkar liggi saman á ný fyrr en síðar,“ segir Sveinbjörn að lokum.