Dönsk stjórnvöld gáfu í sumarbyrjun grænt ljós á ferðalög þegna sinna til Noregs, Þýskalands og Íslands. Auk þess gátu Danir ferðast til Grænlands og Færeyja án þess að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna heim.
Valkostirnir voru því ekki margir og samkvæmt nýjum tölum Ferðamálastofu þá kusu óvenju margir Danir að leggja leið sína hingað til lands í júlí. Þá flugu nefnilega nærri tíu þúsund Danir frá Keflavíkurflugvelli eða þriðjungi fleiri en í júlí í fyrra.
Gera má ráð fyrir að fjöldi Dana hafa einnig nýtt sér ferðir Norrænu hingað til lands í síðasta mánuði enda siglir ferjan vikulega frá Jótlandi til Íslands.
Næst fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi í júlí voru Þjóðverjar en þeim fækkaði þó um helming frá því í júlí í fyrra.
Á hefðbundinni sumarvertíð í ferðaþjónustunni þá eru Bandaríkjamenn stærsti kúnnahópurinn. Í júlí í fyrra flugu héðan til að mynda um 65 þúsund bandarískir farþegar. Í nýliðnum júlí voru þeir hins vegar tæplega fjögur hundruð talsins.
Íslendingar sjálfir stóðu undir um 23 prósent af farþegafjöldanum á Keflavíkurflugvelli í júlí. Þá flugu nefnilega rúmlega 13 þúsund Íslendingar frá landinu og hafa ber í huga að inní þeirri tölu er Íslendingar búsettir í útlöndum.