Fjórða hverjum starfsmanni Kastrup sagt upp störfum

Stjórnendur Kaupmannahafnarflugvallar segjast þurfa að laga starfsemina að breyttum veruleika. Þar með er ekki þörf fyrir alla 2600 starfsmenn flughafnarinnar.

Frá Terminal 3 á flugvellinum við Kastrup. Mynd: Cph.dk

Flugvöllurinn við Kastrup í Danmörku hefur lengi verið fjölfarnasta flughöfn Norðurlanda. Nú hefur farþegunum hins vegar fækkað ört vegna kórónuveirukreppunnar og stjórnendur flugvallarins gera ráð fyrir að umferðin muni ekki ná fyrri hæðum í bráð.

Af þeim sökum verður 650 af um 2600 starfsmönnum flugvallarins sagt upp störfum samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu. Það þýðir í raun að fjórðungur starfsfólksins missir vinnuna.

Í fyrra fóru þrjátíu milljónir farþega um Kaupmannahafnarflugvöll eða fjórum sinnum fleiri en um Leifsstöð.