Það voru skiljanlega miklu færri Íslendingar á ferðinni í útlöndum í sumar og til marks um það fækkaði íslenskum farþegum á Keflavíkurflugvelli um 147 þúsund yfir sumarmánuðina þrjá. Það nemur 85 prósent samdrætti samkvæmt tölum Ferðamálastofu.
Mest var niðursveiflan í júní eða 92 prósent en svo skánaði staðan í júlí og þá fækkaði ferðum Íslendinga um 78 prósent. Í ágúst kom svo bakslag eins og sjá má á súlurtinu hér fyrir neðan.