Demantshringurinn var formlega opnaður við hátíðlega athöfn í gær þegar þrír ráðherrar klipptu á borða sem var strengdur yfir nýjan Dettifossveg mitt á milli Dettifoss og Ásbyrgis.
Þessi ferðamannaleið er 250 kílómetra löng og tengir saman Húsavík, Goðafoss, Mývatnssveit, Dettifoss og Ásbyrgi auk fjölda annarra áfangastaða.
„Nafnið Demantshringurinn hefur verið notað um árabil um þessa leið og ferðir verið seldar undir því nafni en Markaðsstofa Norðurlands hefur undanfarin misseri unnið að undirbúningi að markvissri markaðssetningu á ferðamannaleiðinni í samstarfi við Húsavíkurstofu. Sú vinna var unnin í samhengi við framkvæmdir við Dettifossveg en stefnt er að því að ljúka þar framkvæmdum á næstunni. Því verður hægt að keyra alla leiðin á bundnu slitlagi en í áraraðir hefur norðlensk ferðaþjónusta og fleiri kallað eftir því að vegurinn á milli Dettifoss og Ásbyrgis yrði byggður upp, en gamli vegurinn var seinfær og lokaður stóran hluta ársins,“ segir í tilkynningu.